Útlit borðsins er hannað með viðarplanka í huga, sem gefur því hlýlega og náttúrulega tilfinningu og áferð.
Borðbrúnirnar auka enn á áhrif plankaútlitsins.
Viðaræðarnar og náttúruleg litbrigði færa borðinu einstakt útlit sem er hluti af þokka viðarins.
Bólstrað sætið eykur þægindin.
Það er notalegt að sitja í stólnum því bak hans gefur lítillega eftir.
Eik er afar sterkur og endingargóður harðviður með áberandi viðarmynstri. Hún verður dekkri og fallegri með aldrinum og fær á sig gullbrúnan undirtón.
Mjúkt, slitsterkt leður sem er auðvelt í umhirðu og verður fallegra með tímanum.