Samantekt
Borðið sem léttist.
Í yfir tuttugu ár höfum við minnkað ummfangið en aukið framleiðsluna á LACK kaffiborðunum. Það hefur haldið verðinu niðri en aukið eftirspurnina. Á þessum tíma hefur LACK einnig orðið auðveldara í fluttningi og samsetningu.Og nú hefur þú enn fleiri liti og útgáfur til að velja úr - og þær halda áfram að koma. Þú getur nú staðsett LACK með sígildum sófa, fallegri ávaxtaskál eða skemmtilegum barnastólum. Og öll LACK línan kemur í litum og formum sem passa saman - og passar við önnur húsgögn frá IKEA.
Coordination
Lítið borð með mikinn hljóm
LACK kaffiborðin koma í mismunandi lit og með mismunandi áferð, og nýjar útgáfur koma reglulega. Það gerir þér kleift að velja borð algerlega eftir þínu höfði. Borð sem passar við KLIPPAN sófann þinn, mottuna eða ávaxtaskálina, eða jafnvel borð sem skapar mótsögn við mjúkar pullur og háa stóla. Ef þér líkar útlitið skaltu kíkja á alla línuna sem er með allt frá hillum að sjónvarpsskápum. Passar hvert með öðru og við önnur húsgögn frá IKEA.
Efni
Hvað er samsett plata?
Við notum samsettar plötur í mikið af húsgögnunum okkar, til dæmis í borð og fataskápa. Þær eru léttar en samt stöðugar og endingargóðar. Hver plata er gerð með ramma úr spónaplötu, trefjaplötu eða gegnheilum við sem fyllt er upp í með pappa, að mestu endurunnum. Lögun pappafyllingarinnar gerir hana sérlega endingargóða. Platan er svo húðuð með málningu, þynnu eða viðarspóni eftir því hvaða útlit við viljum fá.