Efni
Hvað er samsett plata?
Við notum samsettar plötur í mikið af húsgögnunum okkar, til dæmis í borð og fataskápa. Þær eru léttar en samt stöðugar og endingargóðar. Hver plata er gerð með ramma úr spónaplötu, trefjaplötu eða gegnheilum við sem fyllt er upp í með pappa, að mestu endurunnum. Lögun pappafyllingarinnar gerir hana sérlega endingargóða. Platan er svo húðuð með málningu, þynnu eða viðarspóni eftir því hvaða útlit við viljum fá.
Coordination
Par í stofuna
Vörurnar í LACK og EXPEDIT vörulínunum eru gerðar fyrir hvora aðra. Þær eru framleiddar í sömu lögun og í litum sem passa saman og bæta hverja aðra upp, en hafa samt mismunandi hlutverkum að gegna. Blandaðu saman vegghillum, hillueiningum, sófaborði og sjónvarpsbekk til að gera stofuna eins og þú vilt hafa hana. Auðvitað ganga vörurnar líka einar og sér - ef þú hefur nú þegar búið heimilið þitt með uppáhalds húsgögnunum þínum.
Samantekt
Borðið sem léttist.
Í yfir tuttugu ár höfum við minnkað ummfangið en aukið framleiðsluna á LACK kaffiborðunum. Það hefur haldið verðinu niðri en aukið eftirspurnina. Á þessum tíma hefur LACK einnig orðið auðveldara í fluttningi og samsetningu.Og nú hefur þú enn fleiri liti og útgáfur til að velja úr - og þær halda áfram að koma. Þú getur nú staðsett LACK með sígildum sófa, fallegri ávaxtaskál eða skemmtilegum barnastólum. Og öll LACK línan kemur í litum og formum sem passa saman - og passar við önnur húsgögn frá IKEA.