Efni
Hvað er keramik?
Keramik er hitaþolið endingargott efni sem hefur verið notað í nytjahluti þúsundir ára. Grunnefnið er mismunandi tegundir af leir sem er brenndur í ofni og verður meðal annars að terrakotta, borðbúnaði, leirmunum og postulíni. Við hjá IKEA notum keramik aðallega í blómapotta, postulín, handlaugar og eldhúsvaska. Þar sem hægt er að móta hann að vild og glerja með hvaða lit og gljástigi sem er eru möguleikarnir endalausir.
Hugleiðingar hönnuða
Maria Vinka, hönnuður
„Borðbúnaðurinn á að færa veitingunum sviðsljósið. Innblásturinn að FÄRGKLAR sprettur frá alþjóðlegri matarmenningu og hentar fyrir allt frá hrísgrjónaréttum og pasta að taco og sushi. Svolítið eins og kamelljón í eldhúsinu með formi og lit sem passar með öðru sem þú ert með á heimilinu. Vonandi þykir þér borðbúnaðurinn vera hlýlegur, hentugur og fallegur – svona eins og uppáhaldspeysan þín sem er alltaf notaleg.“