10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem hægt er að taka það af og þvo í vél.
Hægt er að raða sófaeiningunum saman á mismunandi vegu til að fá þá stærð og lögun sem hentar þér og heimilinu.
Búðu til samsetningu með teikniforritinu. Settu saman, taktu í sundur og settu aftur saman þar til allt er fullkomið.
Breiðir armarnir rúma allt frá farsíma til snakkskálar fyrir kvikmyndina.
Áklæðið er úr Saxemara efni sem er úr bómull og pólýester. Áferðin er mjúk en endingargóð, nútímaleg og glæsileg.
Þægilegur hægindastóllinn endist lengi þar sem sessan er fyllt með eftirgefanlegum svampi sem veitir góðan stuðning og nær fljótt réttri lögun þegar þú stendur upp úr honum.
Bættu við VIMLE höfuðpúða til að framlengja bakið áhægindastólnum, þannig að þú sitjir á þægilegan hátt og fáir góðan stuðning fyrir hnakkann.