Auðvelt að halda hreinu með því að þurrka af með rökum klút.
Slitfletir eru klæddir með Grann – mjúku, þægilegu og sterku hágæðaleðri með náttúrulegum litbrigðum. Aðrir hlutar eru klæddir með Bomstad, húðuðu efni.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Hægt er að raða sófaeiningunum saman á mismunandi vegu til að fá þá stærð og lögun sem hentar þér og heimilinu.
Búðu til samsetningu með teikniforritinu. Settu saman, taktu í sundur og settu aftur saman þar til allt er fullkomið.
Þægilegur hægindastóllinn endist lengi þar sem sessan er fyllt með eftirgefanlegum svampi sem veitir góðan stuðning og nær fljótt réttri lögun þegar þú stendur upp úr honum.
Bættu við VIMLE höfuðpúða til að framlengja bakið áhægindastólnum, þannig að þú sitjir á þægilegan hátt og fáir góðan stuðning fyrir hnakkann.