5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Blásturinn dreifir hitanum fljótt og vel um allan ofninn og gerir þér kleift að elda og baka marga rétti í einu án þess að það hafi áhrif á bragð.
Einstaklega rúmgóður og tryggir nægt pláss fyrir matvælin sem þú vilt elda.
Hægt að nota bæði sem örbylgju- og blástursofn og jafnvel bæði á sama tíma fyrir mjög skjóta eldamennsku.
Auðvelt að setja upp í þægilega vinnuhæð, í grunnskáp eða háan skáp.
Brauð- og pizzustilling gera brauðmetið fallega brúnt að utan og pizzubotninn stökkan.
Auðvelt að þrífa þar sem ryðfría stálið er meðhöndlað með kámvörn.
Undir- og yfirhiti til að fá stökka áferð á ofnrétti og hægelda pottrétti.
Ofnhurð með barnalæsingu bætir öryggi í eldhúsinu.
Þú getur auðveldlega valið bestu grillstillinguna til að elda þunnar kjötsneiðar og grænmeti eða til að brúna gratín og steikur.
Blandan af blæstri og örbylgjum dregur úr eldunartíma og orkunotkun.
Forstilltar eldunarstillingar auðvelda þér að velja réttar stillingar fyrir mismunandi matvæli og uppskriftir.
Ofninn er með sjálfvirka læsingu svo börn kveiki ekki óvart á honum. Það er ekki hægt að nota stjórnborðið nema opna og loka hurðinni áður.
Afþíðingarstillingin reiknar út hversu langan tíma matvælin þurfa og hve mikinn hita, en þú getur líka endurstillt hana handvirkt.