5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Tímastillirinn gerir þér kleift að stilla vélina allt að 24 klukkustundir fram í tímann og þvo þegar þér hentar.
Uppþvottavélin er með þrjár grindur. Hún rúmar því einstaklega mikið og auðvelt er að raða í hana.
Þú kemur auðveldlega fyrir stórum hlutum þar sem hægt er að leggja niður haldarana fyrir glös og diska á bæði efri og neðri grindinni.
Með rafmagnssaltmæli. Mýkingarefnið gerir kalkríkt vatn að góðu uppþvottavatni og kemur í veg fyrir að kalkið safnist fyrir í vélinni.
Flæðivörn sem skynjar leka og lokar sjálfkrafa fyrir vatnið.
Þegar þvottakerfinu er að ljúka opnast hurðin sjálfkrafa og helst örlítið opin svo að borðbúnaðurinn verði fyrr þurr.
Uppþvottavél sparar bæði vatn og orku því þegar þú vaskar upp í höndunum notar þú yfirleitt fimm sinnum meira af vatni.
Vélin þurrkar einstaklega vel með miklum hita í lokaskoluninni og lengri þurrktíma. Sniðugt til að þurrka plasthluti hraðar.
Með níu stillingum, þar á meðal vatnssparandi eco-stillingu og hreinsunarstillingu.
Þú getur stillt hæðina á efri hillunni til þess að hærri glös, vasar og slíkt komist vel fyrir.