10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Háglans hvít áferð skapar stílhreint og nútímalegt yfirbragð með innfelldum höldum.
Bættu við fleiri skápum úr ÄNGSJÖN vörulínunni til að skapa stílhreint baðherbergi sem hentar þínum þörfum.
Nútímaleg handlaug úr muldum marmara. Brúnirnar eru beinar og yfirborðið rispast síður.
Þú getur bætt við speglaskáp eða spegli í þínum stíl, seldir sér.
Tveir vaskaskápar með vöskum og tveim skúffum. Hægt er að velja hvort þið deilið plássinu eða skiptið því alveg með ykkur.
Einingin er fest upp á vegg. Það léttir á baðherberginu og einfaldar þér að skúra gólfið. Þú getur einnig bætt við fótum.