25 ára ábyrgð
Efni
Hvað er spónaplata?
Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.
Gæði
Þolir meira en hún þarf
Eldhúsin okkar verða að þola mikið. Hilluprófið er bara eitt af gæðaprófunum okkar. Við setjum 27 kg á 80 cm breiða hillu, í heila viku. Hillan má ekki svigna meira en um nokkra millimetra - til að hún þoli sannanlega kröfur daglegrar notkunar.