METOD
Veggskápur,
40x37x60 cm, hvítt

3.950,-

Magn: - +
METOD
METOD

METOD

3.950,-
Vefverslun: Til á lager

25 ára ábyrgð

METOD eldhúseiningar veita þér færi á að hanna draumaeldhúsið. Veggskápurinn nýtir veggrýmið vel og setur hlutina í augnhæð – og því vel sýnilega.
METOD veggskápur

Eldhús um allan heim

Hvernig sem draumaeldhúsið þitt lítur út er næsta víst að það sé ólíkt draumaeldhúsi annarra. Það lærðum við þegar við rannsökuðum hvað fólk vill í eldhúsinu víða um heim. Ætlunin með METOD eldhússeiningunum er þessi: Að hægt sé að hanna besta eldhúsið fyrir þig – hverjar sem óskir þínar og aðstæður eru.

Markmiðið var að hjálpa eins mörgum og hægt væri að eignast eldhús sem þeir elska að vera í. Svo byrjuðum við að teikna. „METOD var stórtækasta breytingin sem IKEA hefur gert á eldhúsunum sínum og því vorum við afar ákveðin í að gera það vel,“ segir Klas-Ola Nilsson, sérfræðingur.

Rannsóknir frá öllum heimshornum

Hvernig líta svo draumaeldhúsin út? Við spurðum þúsundir manna, heimsóttum hundruð heimila og unnum með sérfræðingum í matvælageiranum. „Við komumst að því að það er eitthvað sem eldhús um heim allan eiga sameiginlegt og er það að þau eru afar misjöfn“. Segir Klas-Ola. „Fyrir hverja þá sem dreyma um opið eldhús er aðrir í smáu rými eða rými sem ekki er hægt að breyta mikið.“

Frá rannsóknum til raunheims

Eitt var okkur fyllilega ljóst. „Við urðum að hanna eldhússeiningar sem hægt væri að aðlaga að mismunandi stærðum af rýmum sem ekki væri hægt að breyta á alveg nýjan hátt,“ segir Klas-Ola. „Því hönnuðum við skápa sem passa nánast hvar sem er.“ Mismunandi stærðir af skápum sem hægt er að raða saman á óteljandi máta svo þeir passi í rýmið sem er til staðar. Svo er sniðuga innvolsinu bætt inn í eftir þörfum.

Tilbúin fyrir framtíðina

Sveigjanlegt eldhús sem passar betur við það hvernig þú eldar, nú og í framtíðinni. Hvort sem þú óskar þér hagkvæmara eldhús eða vilt geta notað það fyrir alls konar tilefni, óskum við þess að METOD geti hjálpað þér. „Það er ekkert sem segir að METOD sé meitlað í stein,“ segir Klas-Ola. „Draumaeldhúsið er alltaf að þróast og til að standa undir draumum framtíðarinnar þarf METOD að gera það líka.“

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er spónaplata?

Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.

Eiginleikar

Grunnurinn að eldhúsinu

METOD skápar eru grunnurinn að eldhúsinu. Veldu á milli grunnskápa, veggskápa og hárra skápa í mismunandi breiddum. Veggskáparnir og háu skáparnir fást einnig í mismunandi hæðum. Ef þú vilt nýta hornið skaltu velja hornskáp með snúanlegum hillum sem auðvelda þér að nálgast innihaldið. Það eru jafnvel sérstakir skápar fyrir einfalda og tvöfalda innbyggða ofna sem eru sérlega hentugir ef þú vilt hafa þá í þægilegri vinnuhæð. Bættu svo við hagnýtu UTRUSTA, UPPDATERA og VARIERA innvolsi.


Bæta við vörum

Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X