10 ára ábyrgð
Efni
Hvað er spónaplata?
Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.
Eiginleikar
Hafðu skápinn eins og þér hentar
Það er auðvelt að sníða PAX fataskápana að þínum þörfum, fötum og rými. Blandaðu saman innvolsi og skápum í mismunandi hæðum, breiddum og með mismunandi áferð – og veldu hurðir á lömum eða rennihurðir í þeim stíl sem þér líkar best.