Nýtt
PAX
Fataskápur,
100x58x236 cm, grádrappað

16.950,-

Magn: - +
PAX
PAX

PAX

16.950,-
Vefverslun: Til á lager
Auðvelt er að setja saman PAX fataskápinn, taka hann niður og setja aftur saman, og það án verkfæra. Galdurinn er samanbrjótanleg hönnun sem opnast eins og bók akkúrat á þeim stað sem þú vilt hafa skápinn á.
PAX fataskápur

Breiddu úr PAX fataskápnum þínum

Stundum getur verið gott að hlera. Einn reyndasti starfsmaður okkar í þróun og nýsköpun heyrði samstarfsmenn tala um hversu erfitt það geti verið að setja PAX fataskáp. Það kveikti strax áhuga hjá honum. Hvernig er hægt að gera samsetninguna auðveldari og fljótlegri.

„Það var sérstaklega eitt sem olli vandræðum í fyrri útgáfu af PAX fataskápnum,“ segir Benny Andersson sem lengi hefur unnið hjá IKEA sem tæknimaður. „Það var of flókið að setja hann saman í uppréttri stöðu. En að setja hann saman og reisa svo upp krefst hærri lofthæðar sem er ekki alltaf til staðar.“

Opnast eins og bók

Benny hóf að leita að nýjum leiðum með samstarfsfólki sínu: hvað ef hliðarnar væru fastar við bakið í pakkningunni – svo þær séu bara á sínum stað frá upphafi og ekkert mál að koma öllu saman uppréttu. Teymið fann lausnina í nýstárlegum lömum sem gerði það kleift að setja stykkin saman í framleiðsluferlinu. „Þegar skápurinn er kominn heim opnar þú hann eins og bók og smellir öllu á sinn stað. Snilldin felst svo í því að það er jafnauðvelt að smella honum aftur í sundur ef færa þarf fataskápinn.“

Fljótlegt að setja saman með réttum leiðbeiningum

Með nýju aðferðinni tókst Benny og samstarfsfólkinu hans að stytta tímann sem samsetning á PAX skáp tekur um helming. En þau voru samt ekki orðin sátt. „Við erum sérfræðingar innan okkar sviðs og það var mikilvægt að fá samstarfsfólk með annan og ólíkan bakgrunn til að aðstoða okkur við að prófa samsetninguna. Þannig náðum við að bæta samsetningarleiðbeiningarnar og stytta tímann sem samsetningin tekur enn meira. Það sem byrjaði með því að Benny hlustaði á samræður annarra endaði með því að PAX skápurinn er nú bæði fljótlegri og einfaldari í samsetningu. „Til að ná árangri í verkefni eins og þessu er mikilvægt að allir innan teymisins skori á og hvetji hvert annað. Markið er á móti straumnum og árangur næst aðeins með því að allir leggi sitt af mörkum.“

Sjá meira Sjá minna

Eiginleikar

Listin að gera hlutina einfaldari

Við viljum hafa hlutina einfalda en tökum samt að okkur erfið verkefni með ánægju. Þannig fórum við að því að auðvelda samsetninguna á PAX fataskápnum. Nú er hann brotinn saman sem auðveldar þér að setja hann upp þar sem þú vilt hafa hann, án þess að þurfa að færa hann eftir samsetninguna – og svo setur þú rennihurðirnar upp í skrefum án vandræða eða þurfa að lyfta þeim upp í heilu lagi. Það er einnig auðvelt að taka skápinn í sundur og setja hann aftur saman svo þú getur flutt hann með þér á milli heimila og notið PAX jafnvel enn lengur.


Bæta við vörum

Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X