GULLABERG línan býr yfir hirslum sem sinna ólíkum þörfum. Þær eru allar sterkar og hefðbundnar og hjálpa þér að skapa hentugt, skipulagt og samræmt heildarútlit á heimilinu.
Viðarhöldur færa því einstakan svip.
Í GULLABERG línunni eru kommóður, náttborð og PAX hurðir með vandlega hönnuðum eiginleikum í fallegum stíl. Bættu við rúmi í sama stíl, til dæmis STJÄRNÖ.
Stakur fataskápur með þremur hurðum og spegli í fullri lengd. Nytsamlegur í sígildum stíl með fallegum smáatriðum.
Nóg pláss fyrir samanbrotin og hangandi föt, með einni fataslá og þremur stillanlegum hillum.
Hnúðar á hvorri hlið – tilvalið fyrir náttsloppa, föt morgundagsins eða til að lofta um fötin.
Neðst á skápnum eru tvær skúffur sem henta einstaklega vel undir nærföt eða annað smálegt.
Háir fætur auðvelda þrif undir skápnum.