5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Skáparnir og framhliðarnar eru klædd með melamínþynnu sem rispast síður og auðvelt er að þrífa.
Plasthúðuð borðplatan er endingargóð og auðveld í umhirðu. Með smá alúð helst hún eins og ný í mörg ár.
Hvítar fulningaframhliðar með tímalaust útlit, ásamt borðplötu með eikarútlit færa þér notalegt eldhús í hefðbundnum stíl.
Skúffur ásamt stillanlegum hillum gera þér kleift að raða vel og vandlega í hirsluna.
Gott vinnupláss þar sem gert er ráð fyrir vaski og blöndunartæki öðrum megin og eldunarsvæði hinum megin.
Þú getur sniðið skápana og skúffurnar að hlutunum þínum með innvolsi sem selt er sér.
Hagkvæmt skipulag fyrir minni eldhús með rými fyrir öll helstu verkefni og góðu yfirliti yfir hlutina þína.
Veggskápur með rennihurðum nýtir veggplássið vel. Hentug hirsla sem gerir þér kleift að sjá hvað er í henni og þú getur stillt upp fallegustu hlutunum.