Eldhúsverkin verða mun auðveldari þegar allt er innan handa Veggskápurinn auðveldar þér að nálgast diska og glös.
Hentugur staður til að elda með pláss fyrir það sem þú þarft að gera í eldhúsinu og með allt innan handar.
Bilið á milli grunnskápanna hentar fyrir uppþvottavél, lítinn kæli eða þvottavél. Þá má líka sleppa því að fylla inn í bilið og hafa stól þar.
Þú getur sniðið skápana og skúffurnar að hlutunum þínum með innvolsi sem selt er sér.
Skáparnir og framhliðarnar eru klædd með melamínþynnu sem rispast síður og auðvelt er að þrífa.
Plasthúðuð borðplatan er endingargóð og auðveld í umhirðu. Með smá alúð helst hún eins og ný í mörg ár.
Hvítar framhliðar ásamt borðplötu með eikarútliti færa eldhúsinu frískandi, tímalaust útlit sem fellur vel að stíl flestra.
Skúffueining nálægt eldunarsvæðinu veitir gott aðgengi að áhöldum, litlum pottum og skurðarbrettum.