Það eru nokkrar raufar í hirslunni, þannig að þú getur sett kassa og hillur þar sem þú vilt hafa þau – og breytt til hvenær sem er.
Ef þú vilt verja innihaldið fyrir ryki og óhreinindum getur þú notað TROFAST lok sem selt er sér.
Deila börnin sama herbergi? Hirslan kemur sér einnig vel sem skilrúm þar sem hægt er að nálgast kassana frá báðum hliðum.
Plastkassarnir eru til í ólikum litum og lífga upp á barnaherbergið.
Sveigjanleg hirsla fyrir barnaherbergið – geymdu leikföng í kössum eða bökkum og stilltu upp hlutum í hillurnar.