Ílátið er úr eldföstu gleri og því má nota það sem eldfast mót.
Þú sérð í gegnum bæði ílátið og lokið og því er auðvelt að finna það sem þú leitar að sama hvert þú setur krukkuna.
Smellulokið kemur í veg fyrir að ílátið leki og ver innihaldið fyrir frostskemmdum. Því hentar það bæði til að taka með sér og frysta afganga.
Ílátið er úr gleri og dregur því ekki í sig lykt eða lit, t.d. úr tómatsósu, og því er auðvelt að þrífa það.
Stærðin passar í flesta lofsteikingarpotta og hentar vel til að hita, elda eða baka.