Hægt að nota aftur og aftur því það má vaska pokana upp og loka aftur.
ISTAD pokarnir eru með tvöfaldri lokun og því halda þeir innihaldinu fersku lengur – og halda jafnvel vökva án þess að leka.
Snúðu pokanum við og þvoðu hann og þurrkaðu vel áður en þú notar hann aftur.
ISTAD pokinn er gegnsær og því sérð þú auðveldlega innihaldið.
Þú getur minnkað matarsóun og haldið matnum ferskum í lengri tíma með því að geyma afganga eða þurrmat í pokum sem hægt er að nota aftur og aftur og leka ekki.
Pokarnir henta vel undir afganga og þurrmat en einnig fyrir púsl, spil og aðra smáhluti. Þeir eru gegnsæir svo ekkert gleymist.
ISTAD pokinn fæst í mismunandi stærðum, veldu stærðina sem hentar þér best. Litlir pokar fyrir snarl eða nammi og stórir pokar sem rúma marga lítra.