Allar þrjár vörurnar í línunni eru jafn breiðar, svo þær raðast fullkomlega saman þegar þær eru notaðar hlið við hlið.
Auðvelt að setja saman og setja upp – svo þú getir byrjað að njóta vörunnar strax.
Einfalda og sveigjanlega GREJIG línan er fullkomin fyrir forstofuna og önnur þröng rými. Bættu við skóhillu og vegghirslu fyrir hagnýta heildarlausn.
Á neðstu slá getur þú sett símann þinn, sólgleraugu og aðra smáhluti – og einnig notað hana fyrir herðatré.
Snagarnir fimm sem fylgja með eru hannaðir til að fara vel með föt og eru prófaðir til að halda allt að 4 kg. Þegar þú smellir þeim á sinn stað auka þeir einnig stöðugleika grindarinnar.
Fjórir fleygar í hornunum halda grindinni í öruggri fjarlægð frá veggnum til að koma í veg fyrir rispur og för.