KALLSÖ bekkur er í hefðbundnum, tímalausum og fallegum stíl með náttúrulegri viðaráferð og fallegum smáatriðum sem færa henni handverksyfirbragð.
Sér um daglegar þarfir þínar í forstofunni – þú getur geymt hlutina þína í skúffunum, lagt töskuna frá þér ofan á bekkinn og jafnvel notað hann til að tylla þér.
Efri skúffan hentar vel fyrir smáhluti eins og lykla og síma á meðan neðri skúffan hentar betur fyrir stærri hluti eins og hatta og töskur.
Þú getur sett minni kassa í skúffurnar til að auðvelda þér að halda skipulagi á hlutunum.
Innfelldar höldurnar eru hannaðar með þröng rými eins og forstofu í huga.
Blanda af náttúrulegum við og gráu bæsi sem gerir það að verkum að viðarmynstrið fær að njóta sín í KALLSÖ húsgögnunum og því passa þau auðveldlega við önnur húsgögn í hefðbundnum skandinavískum stíl.
Úr gegnheilli furu, endingargóðu efni sem er auðvelt í umhirðu og verður aðeins fallegra með tímanum.