16.950,-
16950
Hugleiðingar hönnuða
Designers K Hagberg/M Hagberg
„Þú slakar á í stofunni. Því meira róandi sem yfirbragð hennar er því meira slakar þú á. Þess vegna sköpuðum við BRIMNES – línu sem býr yfir húsgögnum með samræmdu útliti og nóg af plássi fyrir hlutina þína. Stóru skúffurnar á sjónvarpsbekknum gera þér kleift að fela leiki, stjórntæki, snúrur og leikföng. Glerskápurinn sýnir fallegu munina þína, þó bak við hurð og heldur því ryki frá þeim. Ef þér líkar við línuna getur þú einnig innréttað svefnherbergið í sama stíl – með snjöllum hirslum í öllum húsgögnum.“
Efni
Hvað er spónaplata?
Spónaplata er unnin úr endurunnum við og afgöngum frá sögunarverksmiðjum – þannig verður viður sem ekki er í réttum lit, viðarflísar og sag að auðlind í stað þess að enda mögulega sem rusl. Við notum plöturnar í hluti eins og bókaskápa, rúmgrindur, sófa og eldhússkápa. Til að verja þær fyrir sliti og raka setjum við á þær lakk, viðarspón eða filmu sem bætir útlit húsgagnsins.
Coordination
Sniðug hirsla fyrir allt heimilið
Það er auðvelt að koma öllu dótinu þínu fyrir í BRIMNES línunni, hvar sem þú vilt á heimilinu – jafnvel þar sem rýmið er lítið. Þú getur blandað saman kommóðum, fataskápum og öðrum húsgögnum eins og þér hentar og meira að segja rúmin bjóða upp á sniðugar hirslur.