59.990,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
BANKKONTOR
Mottuvefnaður á sér ríka sögu og handtökin hafa lærst á milli kynslóða. Þeim er meðal annars haldið á lofti af færu handverksmönnum og konum sem vefa IKEA mottur í vefnaðarsetrum sem við höfum samþykkt. Þar getum við tryggt velferð listafólksins og samfélagsins þeirra og hráefnanna sem við notum. Því getur þú hjálpað okkur að stuðla að jákvæðum breytingum á sama tíma og þú eignast einstaka handgerða mottu.
Hvað finnst þér um að vera með einstakt listaverk á gólfinu? Sem veitir rýminu notalegt yfirbragð! Handofna BANKKONTOR ullarmottan er með bylgjóttu mynstri sem minnir á mjúkar sandöldur. Flosið er hátt og þykkt með notalegri áferð sem gott er að setja fæturna á. Þar sem ull er náttúruleg efni fer mottan úr hárum til að byrja með. Það er ekkert mál að ryksuga það upp svo þú getir notið yndislega mjúkrar mottunnar – og látið þig dreyma um notalega ferð á ströndina.
Ull er hentugt efni sem kemur venjulega af kindum. Óunnin ull er þvegin og síðan spunnin í garn. Ullarmottur eiga marga kosti. Þær eru mjúkar, hlýjar, það er þægilegt að ganga á þeim og þær endast líka vel. Þær eru líka blettavarðar, þar sem ullin inniheldur náttúrulega olíu sem hrindir frá óhreinindum. Sem þýðir að óhreinindin halda sig á yfirborðinu en fara ekki inn í mottuna. Allar ullamottur fara úr hárum - sumar meira en aðrar - ryksugaðu þær reglulega til að hindra að laus hár berist út um allt.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Þú færð hlýju og þægindi undir iljarnar því langt flosið er úr 100% ull.
Hentar vel á allar tegundir gólfa, líka upphituð gólf.
Mislangt flosið myndar skemmtilegt mynstur og áferð.
Vörunúmer 105.510.77
1 pakkning(ar) alls
Það dugar yfirleitt að viðra eða ryksuga nýju mottuna til að útrýma lykt. Má ekki þvo. Má ekki setja í klór. Má ekki setja í þurrkara. Má ekki strauja. Má ekki þurrhreinsa. Ryksugaðu, hristu og snúðu mottunni reglulega. Þurrir blettir: Fjarlægðu strax með því að skrapa varlega inn að miðju blettsins. Rakir blettir: Ekki nudda. Láttu pappírsþurrkur draga í sig rakann, strjúktu yfir með klút og mildu hreinsiefni. Þurrkaðu hreinsiefnið upp með vatni. Láttu fagfólk um hreinsun þegar þörf er á. Ull er náttúrulegt efni og hátt flosið á mottunni mun fara úr hárum. Haltu mottunni hreinni og fallegri með því að ryksuga hana reglulega með venjulegum ryksuguhaus fyrir gólf, ekki nota snúningshaus.
Mottan passar við tveggja til þriggja sæta sófa, en getur einnig gengið með sófum í öðrum stærðum eftir því hvernig þú hefur hana.
Notaðu STOPP FILT stamt undirlag fyrir mottu til að auka þægindi og öryggi, fer undir alla mottuna.
Þú þarft eitt STOPP FILT stamt undirlag (165×235 cm) fyrir þessa mottu. Klipptu til ef þörf er á.
Varan hefur verið prófuð fyrir notkun á heimilum.
Lengd: | 174 cm |
Heildarþyngd: | 12,50 kg |
Nettóþyngd: | 11,57 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 66,1 l |
Þvermál: | 22 cm |
Vörunúmer 105.510.77
Vörunúmer | 105.510.77 |
Vörunúmer 105.510.77
Flötur: | 4,00 m² |
Lengd: | 240 cm |
Breidd: | 170 cm |
Yfirborðsþéttleiki: | 2700 g/m² |
Þykkt: | 27 mm |
Vörunúmer: | 105.510.77 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 174 cm |
Heildarþyngd: | 12,50 kg |
Nettóþyngd: | 11,57 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 66,1 l |
Þvermál: | 22 cm |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls