695,-
695
Hvernig á að velja
Hvaða planta hentar mér og heimilinu mínu?
Frá tilkomumiklum stilkum og íburðarmiklum laufblöðum til þyrnótta kaktusa og fagurra blóma. Plöntur gera heimilið persónulegra og líflegra – og þú finnur plöntu sem hentar þér og heimilishögum þínum hjá okkur. Hugsaðu út í tegund, stærð og hvernig umhirðu plantan þarf á að halda og hvort henni sé ætlað að vera úti eða inni – ásamt því hvort hún þrífist best í sólskini eða skugga. Notaðu umhirðuleiðbeiningarnar okkar til að finna réttu plöntuna fyrir þig svo hún nái að þrífast. Að lokum getur þú valið blómapott sem þér og nýju plöntunni líkar.
Coordination
Leyfðu laufunum að njóta sín
Skapaðu þína eigin gróðurvin með grænum og vænum plöntum. Eða fáðu frá þeim innblástur til að skapa. Plöntur og blóm eru góðir meðleigjendur – ný planta færir þig nær náttúrunni.
Eiginleikar
Lífgar upp á rýmið
Plöntur geta lífgað upp á heimilið. Þessi bergpálmi er einfaldur í umhirðu og minnir á hitabeltið, og hentar vel til að skapa græna vin innandyra. Hann má vera utandyra þegar hlýtt er, en forðast skal að hafa hann í beinu sólarljósi. Hann getur orðið allt að tveir metrar á hæð – þú getur því komið þér upp frumskógi heima hjá þér eða á skrifstofunni ef þú vilt!