3.990,-
2.490,-
Coordination
Leyfðu laufunum að njóta sín
Skapaðu þína eigin gróðurvin með grænum og vænum plöntum. Eða fáðu frá þeim innblástur til að skapa. Plöntur og blóm eru góðir meðleigjendur – ný planta færir þig nær náttúrunni.
Eiginleikar
Harðgerð planta fyrir byrjendur
Þessi drekalilja er harðger og auðveld í umhirðu. Hún þolir vel þurrk þar sem ræturnar eru sérstaklega góðar í að draga í sig vatn. Hentar vel fyrir byrjendur og þá sem eru ekki með eins græna fingur og þeir vildu. Þrífst best á björtum stað, en ekki í beinu sólarljósi. Dásamlegur herbergisfélagi sem lífgar upp á heimilið!
Hvernig á að velja
Hvaða planta hentar mér og heimilinu mínu?
Frá tilkomumiklum stilkum og íburðarmiklum laufblöðum til þyrnótta kaktusa og fagurra blóma. Plöntur gera heimilið persónulegra og líflegra – og þú finnur plöntu sem hentar þér og heimilishögum þínum hjá okkur. Hugsaðu út í tegund, stærð og hvernig umhirðu plantan þarf á að halda og hvort henni sé ætlað að vera úti eða inni – ásamt því hvort hún þrífist best í sólskini eða skugga. Notaðu umhirðuleiðbeiningarnar okkar til að finna réttu plöntuna fyrir þig svo hún nái að þrífast. Að lokum getur þú valið blómapott sem þér og nýju plöntunni líkar.