895,-
895
Sjálfbærara líf heima
Það hefur aldrei verið auðveldara að hafa garð heima
Heldur þú að þú þurfir garð til þess að rækta blóm og grænmeti? Ekki aldeilis. Þú þarft ekki einu sinni mikið pláss til þess að vera góður garðyrkjumaður. Sjálfvökvandi blómapottarnir, gróðurhúsin og garðáhöldin okkar auðvelda þér talsvert þegar kemur að því að breyta heimilinu þínu í gróskumikla gróðurvin.
Samantekt
People+Planet
Það er auðvelt að búa til garð heima með nýju línunni okkar með sjálfvökvandi blómapottum, gróðurhúsum og garðáhöldum. Allt sem þú þarft til að breyta heimilinu þínu í gróskumikið athvarf.
Hvernig á að velja
Hraustar plöntur fyrir hamingjusamt heimili
ODLA leirsteinarnir eru léttir og búa til fullkomið umhverfi fyrir plönturnar þínar. Notaðu þá í botninn til að styðja við frárennslið, dreifðu þeim í moldina til að hleypa lofti að rótunum eða settu þá efst til að koma í veg fyrir að moldin þorni.
Eiginleikar
Besti vinur plöntunnar
Leirkúlur hjálpa þér að hirða um pottaplönturnar þínar. Þær hjálpa til við frárennsli og virka sem vatnsgeymir. Þær hjálpa plöntunni að viðhalda raka, bæta moldina og koma í veg fyrir þörunga. Þær fylla líka upp í stóra potta ef plantan er lítil – og láta gerviplöntu líta út fyrir að vera raunverulegri. Þær eru í raun besti vinur plöntunnar!
Coordination
Leyfðu laufunum að njóta sín
Skapaðu þína eigin gróðurvin með grænum og vænum plöntum. Eða fáðu frá þeim innblástur til að skapa. Plöntur og blóm eru góðir meðleigjendur – ný planta færir þig nær náttúrunni.