Eiginleikar
DVALA lök – besti kosturinn fyrir öll rúm
Segðu halló (og góða nótt) við DVALA lökin sem eru sannarlega gæðavörur á góðu verði! Þau fást í mörgum litum, stærðum og gerðum, eins og teygjulak og hefðbundið lak, og passa því í öll rúm. Úr 100% bómull sem gerir það að verkum að þau eru mjúk, endingargóð og verða hreinlega betri með hverjum þvotti. Þú getur því skriðið upp í mjúkt rúmið fyrir góðan nætursvefn. Þau passa líka einstaklega vel við sængurverasettin í vöruúrvali okkar.
Efni
Hvað er bómull?
Bómull er ein af vinsælustu náttúrulegu trefjunum í heiminum í dag. Vefnaðarvara úr bómull er mjúk, endingargóð og það er hægt að þvo hana á háum hita. Hún andar einnig vel og dregur í sig raka – sem gerir það að verkum að gott er að hafa hana næst líkamanum. Við hjá IKEA notum meira og meira af endurunninni bómull og kappkostum að tryggja að öll ný bómull sem við notum sé ræktuð og unnin með minna magni af skordýraeitri, áburði og vatni.