Hugleiðingar hönnuða
Martina Claesson, hönnuður
„Um leið og ég teiknaði fyrstu línurnar í skissubókina mína vildi ég að TOFSAND luktirnar hefðu yfir sér stílhreinan og einfaldan blæ. Hönnunin einkennist af ávölu handfanginu sem hefur skýrt hlutverk og er ekki bara til skrauts. Málmurinn er í lágmarki sem gerir það að verkum að mjúkt, ávalt glerið hámarkar birtuna og ýtir undir tímalausan og mínímalískan stíl. Litirnir setja líka skemmtilegan svip á hvaða heimili sem er.“