Hugleiðingar hönnuða
James Dart og Akanksha Deo, hönnuðir
„Með VÅRSYREN vildum við gera lukt sem væri falleg ein og sér og fengi svo aukna vídd þegar kveikt væri á kerti í henni. Mynstrið er úthugsað og staðsett þannig að það líti út fyrir að vera á hreyfingu, dragi að sér athygli og skapi skemmtilegt samspil á milli ljóss og skugga á veggnum. Við fengum innblástur frá gömlum skátaluktum sem hægt er að brjóta saman – ein leið til þess að halda efnisnotkun og verðinu í lágmarki. Okkur finnst þetta vera vara sem gefur mikið með litlum tilkostnaði!“