FREDDE
Tölvuleikjaborð,
140/185x74x146 cm, svart

39.950,-

37.950,-

Nýtt lægra verð


Magn: - +
FREDDE
FREDDE

FREDDE

39.950,-
37.950,-
Vefverslun: Til á lager
Hver er hin fullkomna leikjastöð? Það er það sem við ætluðum okkur að búa til þegar við gerðum FREDDE vinnustöðina með því að rannsaka keppnisleiki og fá leikjahönnuð til okkar.
FREDDE tölvuleikjaborð

Tölvuleikjum gert hátt undir höfði

Ef þú stundar ekki tölvuleikjaspil getur verið að þú eigir börn sem gera það. Tölvuleikjaspil fara sigur um heiminn og auðvitað ætti IKEA að bjóða upp á húsgögn sem henta. Hvernig setja spilarar upp aðstöðu til tölvuleikjaspilsins og hvað þurfa þeir til að finna fyrir þægindum og stuðningi. Það urðum við að vita þegar við hönnuðum FREDDE skrifborðið. Hvernig fórum við að því? Við spurðum tölvuleikjaspilara.

David Wahl er ekki bara einn af hönnuðunum okkar, hann er líka tölvuleikjaspilari. Auðvitað fékk hann verkefnið. „Þegar ég byrjaði að spila tölvuleiki þurfti að tryggja að einhverjir af vinunum væru lausir og einhver hefði kost á að bjóða heim, svo var haldið af stað með stjórnborðið undir hendinni,“ segir David. „Nú er alveg jafnlíklegt að þú sért að spila með fólki frá Shanghai, Sidney eða Stokkhólmi.

Uppsetning stjórnstöðvar

Einn kosturinn við það að tölvuleikir hafa færst úr sjónvarpinu eða fjölskyldutölvunni er sá að spilarinn getur sett upp rými sem er aðlagað að leiknum og því sem hann hefur upp á að bjóða. „Stór hluti tölvuleikjaspils er heildarupplifunin,“ segir David. „Þess vegna var mitt fyrsta verk að taka úr borðplötunni svo hægt væri að vera nær skjánum og fá þessa stjórnstöðvartilfinningu, en á sama tíma fá vera með góðan stuðning við handleggina.“

Hannað til að vera aðlagað

Þú kemur hátölurum, 32“ skjá, og nokkra minni skjái í hillu sem hægt að stilla hæðina á. David var einnig með persónulega ósk. „Ég elskaði leiki þar sem maður var í ökuhermi og þurfti að nota fótstig eins og á alvöru bíl,“ segir hann. „Það pirraði mig samt mikið að það var alltaf fullt af snúrum og öðru að þvælast fyrir fótstigunum og því hannaði ég FREDDE skrifborðið þannig að þar væri engin fyrirstaða.“

Stoltur hönnuður

David er ánægður með að tölvuleikjasamfélagið hefur gert skrifborð að sínu. „Myndaleit að FREDDE sýnir hve mikið af fólki aðlagar skrifborðið að eigin þörfum og býr til fullkomið leikjarými, sem er nákvæmlega það sem ég vonaðist eftir.“

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er stál?

Stál hefur þá einstaka eiginleika að þó það hafi verið teygt og mótað þá heldur það styrk sínum. Það er notað til að styrkja allt frá skýjakljúfum og bílum að rúmgrindum og útihúsgögnum. Stáliðnaðurinn hefur verið að stefna í átt að orkunýtnari framleiðslu og betri gæðum. Stál tapar ekki eiginleikum þegar það er endurunnið og í dag er það eitt af þeim efnum sem mest er endurunnið í heiminum.

Eiginleikar

Einmitt fyrir þig

Þú getur notað FREDDE skrifborðið á fjölbreyttan hátt, eins og að spila tölvuleiki, vafra á netinu eða læra. Þú getur stillt hæðina á hillunni fyrir skjáinn. Hengt hátalara innan eða utan á hliðarnar eftir hentugleika. Svo er tölvan sjálf á örugg á hillu undir borðplötunni.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X