Háir fætur; auðveldara að þrífa gólfið undir sófanum.
Áklæðið er úr bómullar- og pólýesterefni og litað í mismunandi tónum sem gefur því fallegt yfirbragð. Sterk og endingargóð gæði í vefnaðinum gefa efninu slétta áferð.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
LÅNGARYD sófinn býr yfir sígildu útliti og þægindum sem endast um ókomin ár.
Áfast áklæði sem smellpassar og helst fallegt, jafnvel eftir að öll fjölskyldan hefur legið í sófanum. Sessan er með pokagormum og svampi sem færir þér mjúk og endingargóð þægindi.
Vandlega hannaður með góðu plássi og rúnnaðri lögun. Rúmar marga, eða bara þig ef þig vantar smá tíma út af fyrir þig – sætisdýptin er tilvalin fyrir dagslúra.
Fallegt bakið á sófanum færir honum karakter á meðan fæturnir færa honum stöðugleika og létt yfirbragð.
Lágir, rúnnaðir armar koma vel út með löguninni á púðunum sem hægt er að færa til eftir þörfum; undir handleggi eða hné – eða sem kodda þegar þú liggur.
Hirsla úr við á legubekknum auðveldar þér að halda umhverfinu í kring um sófann snyrtilegu. Geymdu það sem þú vilt hafa við höndina en úr augsýn. Hirslan hentar vel fyrir SJÖMÄRKE þráðlaust hleðslutæki.
Krómhúðaðir stálfætur færa LÅNGARYD sófanum nútímalegt útlit með stílhreinum línum.