Settu saman þinn eigin einstaka stíl með SKÅLSTA sætum, þau fást í mismunandi litum, áferð og efnivið. Veldu þitt uppáhald og bættu við stöðugri stólgrind úr SKÅLSTA línunni.
Passar fullkomlega með SKÅLSTA stólgrindum og fæst í mismunandi litum.
Auðvelt að setja saman – aðeins örfáar skrúfur.
Þetta þægilega og endingargóða plastsæti fæst í mismunandi litum sem þú getur valið úr.
Sætið hefur þægilega lögun og styður vel við bakið þegar þú situr. Sætisbakið gefur örlítið eftir þegar þú hallar þér aftur.
Það er auðvelt að þurrka af sætinu.