Það er einfalt að leggja grillið saman svo það taki minna pláss á ferðalögum eða í geymslunni.
Loftop auka loftflæðið í grillinu sem gefur af sér hærri hita og hraðari eldun.
Hentar vel til að grilla minni matvæli eins og fisk eða niðurskorið grænmeti þar sem grindin er hönnuð þannig að það dettur ekkert niður á milli á heit kolin.
Þú getur snúið lokinu við og notað það sem skurðarbretti sem er afar hentugt við matarundirbúninginn og til að bera matinn fram.
STRANDÖN ferðakolagrillið er fullkomið til að taka með á ströndina, í lautarferð eða í ferðalagið.
Raðaðu húsgögnunum í STRANDÖN línunni saman eins og þér hentar og skapaðu samræmt útisvæði þar sem þú getur borðað, slakað á og eytt tíma með fjölskyldu og vinum.