Hægt er að halla sólhlífinni svo þú getir skýlt þér allan daginn.
Það er einfalt að opna og loka sólhlífinni með sveifinni.
Loftopið dregur úr þrýstingi og kemur hreyfingu á loftið.
Þú getur auðveldlega snúið sólhlífinni til að skyggja á mismunandi svæði því það er hægt að snúa henni um 360 gráður.
Stöng sólhlífarinnar er úr áli sem þýðir að hún ryðgar ekki.
Efnið veitir góða vörn gegn útfjólubláum geislum þar sem það er með UPF (Ultraviolet Protection Factor) gildið 50+, sem þýðir að það stöðvar 98% af útfjólublárri geislun sólarinnar.
Ól með sylgju heldur efninu á sínum stað þegar það er samanbrotið.
Í léttu regni getur þú slakað á undir sólhlífinni þar sem hlífin hrindir frá sér vatni.