5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Vefverslun: | Til á lager |
Verslun: | Til í verslun |
5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Spanhellur eru mjög orkunýtnar, hraðvirkar og nákvæmar þar sem spantæknin beinir orkunni beint í segulmagnað eldunarílátið.
Notaðu breytilegar hellurnar ýmist saman eða í sitt hvoru lagi svo þú getir notað potta og pönnur í mismunandi stærð og lögun.
Hægt er að samstilla breytilegar hellurnar til þess að fá jafna eldun.
Þú getur forstillt helluborðið þannig að nóg sé að renna pottinum eða pönnunni eftir svæðunum til þess að skipta hratt úr háum í lágan hita í þremur skrefum.
Þú getur aðlagað hitann auðveldlega og nákvæmlega með því að renna fingrinum eftir snertisleðanum eða með því að snerta æskilegt hitastig á skjánum.
Allar hellur eru með hraðsuðustillingu sem gera þær mjög heitar – hentar því vel til að sjóða vatn eða brúna kjöt.
Pásustillingin gerir þér kleift að stöðva eldunina tímabundið, ef nauðsyn krefur, og byrja aftur með sama hitastig og áður. Á meðan pásustillingin er virk heldur hellan sjálfkrafa heitu.
Þú hefur góða stjórn á matreiðslunni því hægt er að tímastilla hverja hellu fyrir sig. Hentar vel til að sjóða egg, hrísgrjón eða pasta.
Þú virkjar barnalæsingu og þrifstillingu með því að halda lásatakkanum inni í fjórar sekúndur. Þannig getur þú þrifið helluborðið án þess að stillingarnar fari úr skorðum.
Auðvelt að þrífa með því að strjúka af með rökum klút eða svampi, því matarslettur og vökvi brenna ekki á hellunum.
Skynjari sem slekkur sjálfvirkt á hellunni ef það sýður upp úr yfir stjórnborðið.
Sniðskorinn kantur að framan færir helluborðinu snyrtilegt og nútímalegt útlit.
Helluborð með spanhellum: 2×220×220 mm, 2×180×210 mm og 1×210 mm.
Fimm 2.300 W spanhellur með hraðsuðu; 3.200 W.
Rafspenna: 220-240 V.
Heildarorkunotkun: 7.350 W.
Rafstraumur: 2x16 A eða 1x32 A.
Eiginleikar:
Fimm hellur með hraðsuðu (P).
Þarf að tengja. Rafmagnssnúra fylgir ekki. Láttu sérhæfðan aðila um uppsetningu.
Þú finnur allar upplýsingar um mismunandi stillingar í notkunarleiðbeiningunum undir Samsetningarleiðbeiningar.
Varan er CE merkt.
Eldunarílát fyrir spanhelluborð þurfa að vera með segulmögnuðum botni.
IKEA of Sweden
Breidd: 78.0 cm
Dýpt: 52.0 cm
Hæð: 4.9 cm
Þyngd: 14.78 kg
Með því að framleiða vörur sem hjálpa fólki við að minnka orkunotkun stuðlum við að sjálfbærara heimilislífi.