Heimilið á að vera öruggur staður fyrir alla fjölskylduna. Þess vegna fylgja öryggisfestingar til að festa eininguna við vegginn.
Vefverslun: | Til á lager |
Verslun: | Til í verslun |
Heimilið á að vera öruggur staður fyrir alla fjölskylduna. Þess vegna fylgja öryggisfestingar til að festa eininguna við vegginn.
Hannað til að nota bæði eitt og sér og með öðrum húsgögnum í HAUGA línunni, hvar sem er á heimilinu, hvort sem er til að skapa samræmt heildarútlit eða til að raða saman stærri lausn.
Hámarkaðu hirsluplássið og skapaðu samræmt útlit með því að hanna þína eigin HAUGA hirslu.
Fjölhæft húsgagn sem þú getur notað víða á heimilinu.
Einstakt útlit og snjöll hönnun gera það að verkum að húsgögnin í HAUGA línunni virka vel ein og sér og jafnvel enn betur saman. Hliðarnar eru beinar og sléttar og því falla þau vel hver að öðru þegar þeim er raðað hlið við hlið.
Fullkomin hirsla fyrir samanbrotinn fatnað eða til að hengja upp stuttar og langar flíkur.
Rennihurðir gefa meira rými fyrir húsgögn þar sem þær taka ekkert pláss þegar þær eru opnaðar.
Þú færð góðan stað til að hengja upp handtöskur, baðslopp og aukahluti á hlið skápsins með því að bæta við SKOGSVIKEN snaga á hurð.
Efri parturinn er eins á öllum HAUGA hirslunum og leggur áherslu á hefðbundið útlitið. Kanturinn heldur öllu á sínum stað, hvort sem þú ert að geyma hatta, kassa eða skrautmuni.
Auðvelt að setja saman þökk sé blindnaglanum sem smellist einfaldlega í þar til gerð göt.
VARÚÐ! FALLHÆTTA – Húsgagnið getur fallið fram fyrir sig. Festu það við vegg með meðfylgjandi öryggisfestingum.
Veggir eru mismunandi og þurfa mismunandi skrúfur og festingar. Notaðu skrúfur og aðrar festingar sem henta veggjum heimilisins. Þær eru seldar sér.
Fatasláin rúmar um 30 skyrtur á herðatrjám.
Ola Wihlborg
Breidd: 118.0 cm
Dýpt: 55.0 cm
Hæð: 199.0 cm
Þrífðu með rökum klút.Þurrkaðu með hreinum klút.
Með því að nota afganga úr sögunarverksmiðjum og viðarrusl í spónaplötuna fyrir þessa vöru notum við allt tréð en ekki bara bolinn. Þannig förum við betur með auðlindir okkar.
Hliðarplata: Spónaplata, Pappírsþynna, Plastkantur
Toppplata/ Bakslá/ Skilrúm/ Botnplata/ Hilla: Spónaplata, Pappírsþynna
Bakþil: Trefjaplata, Akrýlmálning
Hurðarkarmur: Trefjaplata, Pappírsþynna, Plastkantur
Panill: Trefjaplata, Pappírsþynna