Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Veggskápar með hurðum nýta vel plássið yfir vaskinum og borðplötunni. Tilvalinn fyrir glös, borðbúnað eða hreinsiefni.
Opin hirsla veitir þér mikið hillupláss fyrir skálar og minni heimilistæki á borð við brauðrist, blöndunartæki og hrísgrjónapott.
Fylltu upp í rýmið. Nýttu aukaplássið í eldhúsinu undir uppþvottavél. Þá getur þú slakað á eftir kvöldverðinn, vitandi það að þú sparar tíma, orku og vatn.
Ekkert pláss fyrir þvottavélina? Nýttu aukaplássið í eldhúsinu í hagnýtt pláss fyrir þvottinn.
Eldhúsið er hannað fyrir ferðaspanhellu og/eða örbylgjuofn – taktu tækið síðan úr sambandi og settu til hliðar til að búa til meira pláss fyrir matargerðina. Kælir/frystir, uppþvottavél eða þvottavél passa undir borðplötuna.
Svæðið á milli skápsins og opna skápsins er tilvalið fyrir frístandandi kæli, uppþvottavél eða þvottavél, selt sér.
Bættu við ferðaspanhellu/örbylgjuofni að búa til góða eldunaraðstöðu. Auðvelt að koma fyrir í skáp eða hengja á snaga þegar hún er ekki í notkun, til að rýma til á borðinu fyrir aðra hluti. Seld sér.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opna ENHET skápnum til að geyma þurrkur, hnífapör og kryddjurtir.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Selt sér.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
12,5 cm háir ENHET fætur setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
Eftir þínu höfði! Skiptu á litnum á skápunum og áferðinni á borðinu og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
GUBBARP hnúðar og höldur úr hvítu plasti með einföldu og nútímalegu útliti sem passar með mismunandi hurðum og skúffuframhliðum.
Mött drapplituð borðplata með mynstruðu plasthúðuðu yfirborði og kanta sem líkjast krossvið færir eldhúsinu líflegt útlit. Styttu plötuna í lengd sem þér hentar og settu kantlistana tvo sem fylgja á kantana.
FYNDIG vaskur úr ryðfríu stáli, sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem vinnulýsing yfir borðplötu og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum ljósdeyfi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og deyft lýsinguna.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
Hægt að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Þarf að festa við vegg af öryggisástæðum. Veggir eru mismunandi og þurfa mismunandi skrúfur og festingar. Notaðu skrúfur og aðrar festingar sem henta veggjum heimilisins, seldar sér.
Skrúfur til að festa borðplötuna á grunnskápana eru innifaldar.
Skrúfur til að festa saman grunnskápa innifaldar.
IKEA of Sweden/IKEA of Sweden/E Lilja Löwenhielm/Mikael Axelsson/H Preutz/A Fredriksson/IKEA of Sweden/F Cayouette
Þurrkaðu með hreinum klút.Borðplata: Þurrkaðu með hreinum klút.Hurð: Þurrkaðu með hreinum klút.Þrífðu með mjúkum rökum klút og mildu hreinsiefni án svarfefna eða sápu, ef nauðsyn krefur.Eldhús: Notaðu ekki svarfefni, stálull eða hörð eða beitt áhöld sem geta rispað ryðfrítt yfirborðið.Borðplata: Þurrkaðu strax upp bleytu og óhreinindi með mjúkum klút vættum með uppþvottalegi eða sápu, til að koma í veg fyrir varanlega bletti á borðplötunni.
Vaskur, einfaldur
Efnið í vörunni er hægt að endurvinna. Kynntu þér reglur um endurvinnslu í þínu nágrenni.
Hnúður
Við viljum hafa jákvæð áhrif á jörðina. Því viljum við að öll hráefni sem notuð eru í vörur okkar verði endurunnin eða endurvinnanleg og af ábyrgum uppruna fyrir árið 2030.
Með því að nota endurunnið plast í vöruna notum við minna af nýju hráefni, minnkum loftlagsspor hennar og gefum notuðu hráefni nýtt líf.
Blöndunartæki
Vatn er dýrmæt auðlind og okkur ber að varast sóun á því. Þess vegna eru allir kranar og allar sturtur hjá okkur með búnaði sem sparar vatn og orku án þess að draga úr krafti. Gott fyrir okkur og umhverfið.
Með því að framleiða blöndunartæki og sturtur þannig að þau hjálpi fólki við að minnka vatns- og orkunotkun stuðlum við að sjálfbærara heimilislífi.
Grunnskápur fyrir vask
Hliðarplata/ Botnplata: Spóna- og trefjaplata með pappafyllingu (100% endurunnin pappír), Plastþynna, Plastkantur
Bakrim/ Fylling: Spónaplata, Plastþynna, Plastkantur
Veggskápur með tveimur hillum
Hliðarplata/ Botnplata/ Toppplata/ Hilla: Spónaplata, Plastþynna, Plastkantur
Bakþil: Trefjaplata, Plastþynna
Fætur fyrir skáp
Rör: Stál, Duftlakkað
Fótur: Pólýprópýlenplast (a.m.k. 20% endurunnið)
Diskur: Stál, Duftlakkað, Galvaníserað stál
Festing: Stál, Epoxý/Akrýlhúð
Hillueining
Rör: Stál, Duftlakkað
Hilla: Galvaníserað stál, Duftlakkað
Fleygur: Stál, Epoxý/Akrýlhúð
Fætur fyrir hillueiningu
Rör: Stál, Duftlakkað
Stoppskrúfa: Stál, Epoxý/Akrýlhúð
Hurð
Grunnefni: Spónaplata
Framhlið/ Bakhlið: Plastþynna
Kantur: Plastkantur
Snagi
Ryðfrítt stál, Duftlakkað
Ílát
Pólýprópýlenplast (a.m.k. 20% endurunnið)
Borðplata
Spónaplata, Samlímt, Óbleiktur pappír, Plastkantur
Vaskur, einfaldur
Grunnefni: Ryðfrítt stál
Svampur: pólýúretanplast
Vatnslás/sigti fyrir 1 hólf
Rör: Pólýprópýlenplast
Sía/ Sía: Ryðfrítt stál
Pakkningar: Gervigúmmí
Hnúður
Pólýprópýlenplast
Blöndunartæki
Blöndunartæki: Sink, Málmhúðað
Innri blöndunartæki: Styrkt pólýamíðplast
Stútur: Látún, Látún, Málmhúðað
1 x Vatnslás/sigti fyrir 1 hólf
Vörunúmer: 10311539
1 x Blöndunartæki
Vörunúmer: 30442365
1 x Fætur fyrir hillueiningu
Vörunúmer: 40459911
Uppselt
12.5 cm
1 x EKBACKEN borðplata
Vörunúmer: 00397185
Uppselt
1 x ENHET snagi
Vörunúmer: 00465754
1 x LILLVIKEN vatnslás/sigti fyrir 1 hólf
Vörunúmer: 10311539
1 x ENHET fætur fyrir skáp
Vörunúmer: 10449018
1 x GLYPEN blöndunartæki
Vörunúmer: 30442365
1 x ENHET hillueining
Vörunúmer: 30448975
2 x SKATTÅN ílát
Vörunúmer: 30465757
1 x ENHET fætur fyrir hillueiningu
Vörunúmer: 40459911
Uppselt
2 x ENHET veggskápur með tveimur hillum
Vörunúmer: 50440412
1 x ENHET grunnskápur fyrir vask
Vörunúmer: 50440426
2 x GUBBARP hnúður
Vörunúmer: 80336433
1 x FYNDIG vaskur, einfaldur
Vörunúmer: 90202126
3 x ENHET hurð
Vörunúmer: 90452163