Þegar fólk er í óða önn við að taka upp úr kössum og skála fyrir nýja heimilinu er fullkominn tími til að mæta með innflutningsgjöf sem hittir í mark. Þegar fólk flytur er oft mikið álag og þess vegna þarf yfirleitt ekki mikið til að gleðja nýju húsráðendurna. Við erum með nokkrar sniðugar hugmyndir til að hjálpa þér af stað.
Heimilislegar gjafir
Gefðu vigt fyrir baksturinn eða glerkrukku fyrir heimagert góðgæti. Einnig nýtist stór skál vel á öllum heimilum – í henni er hægt að framreiða dýrindis máltíð í nýja eldhúsinu frá fyrsta degi. Hún gæti jafnvel verið tekin í notkun strax í innflutningspartíinu!