Vörulínan snýst um hreyfingu. Hönnuðirnir okkar 12 unnu sig áfram með því að ögra nánast öllu, allt frá því hvernig við notum efnivið til þess hvernig við fáum meira notagildi úr vörunum. Ekkert er fast í hefðum og allt er dregið í efa.
Í upphafi tíunda áratugarins neyddumst við til að líta í eigin barm og endurskoða stöðu okkar í hönnunarheiminum. Við framleiddum vissulega húsgögn, en var það hönnun?
Allir í kringum okkur virtust vera að selja skandinavíska hönnun – á furðu háu verði. Var ekki skandinavísk hönnun okkar ær og kýr? Af hverju var hún svona fáranlega dýr? Ætti skandinavísk hönnun ekki að vera aðgengileg mun fleirum en bara þeim efnameiri? Jú! Hér var okkar tækifæri!
Árið 1995 kynntum við fyrstu IKEA PS vörulínuna á húsgagnasýningu í Mílanó. Á sama tíma tileinkuðum við okkur nýja hönnunarstefnu sem við fylgjum enn í dag og köllum Democratic Design, eða lýðræðislega hönnun. Síðan þá hafa komið út níu IKEA PS línur til viðbótar, sem allar miða að því að gefa sem flestum færi á lýðræðislegri hönnun.
Línurnar eiga það allar sameiginlegt að standa fyrir skandinavíska hönnun. Rætur okkar liggja í skandinavískum einfaldleika þar sem það að strípa í burtu, í stað þess að bæta á, gerir vörurnar enn áhugaverðari.
Við gerum allt sem við getum til að færa þessum vörulínum dýnamík en við tókum þessa línu skrefi lengra til að koma fegurð einfaldleikans á framfæri og gera hið óvænta aðgengilegt sem flestum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn