Spilastokkur með 64 spilum með tölum, táknum og bókstöfum (stórum og litlum). Algengustu stafirnir koma fyrir tvisvar svo hægt sé að mynda orð.
Flest stafróf innihalda einhverja sérstafi (á íslensku eru það til dæmis ö, æ, ó) og auðu spilin með pennamerkinu eru fyrir þá: barnið getur sjálft skrifað stafina sem vantar.
Þú getur notað spilin í ýmsa leiki, til dæmis ratleik.
Spilin þjálfa minnið: börnin bera kennsl á atriðin, tengja þau saman og endurtaka síðan leikinn.
Barn þjálfar fínhreyfingar sínar þegar það leggur spil á borð, staflar þeim upp og dregur þau úr stokknum.
Frábært fyrir leikskólabörn og börn sem eru að hefja skólagöngu.
Hluti af UNDERHÅLLA línunni – fræðandi og klassísk leikföng sem hjálpa barninu að læra á klukku, telja, læra stafina og skilja tengslin á milli lögunar og jafnvægis.
Það er auðvelt að leika við og kenna börnum með litríkum táknum.