Sendingarþjónusta
Með sendingarþjónustu IKEA geturðu valið þá afhendingarleið sem hentar þér og pöntuninni þinni. Við bjóðum upp á mismunandi valkosti eftir stærð, þyngd og eðli sendinga. Kynntu þér helstu sendingarleiðir hér að neðan.
Pósturinn | Dropp | Samskip | IKEA Höfuðborgarsvæðið | Smelltu sæktu
Nú býður IKEA upp á sendingarþjónustu frá Póstinum
Pósturinn býður upp á ýmsar leiðir, t.d. fyrir pantanir upp að 20 kg sem passa í póstbox sem eru staðsett um allt land og eru flest opin allan sólarhringinn. Einnig bjóðum við upp á sendingar heim og á næsta pósthús víðs vegar um land. Sendingakostnaður tekur mið af gjaldskrá Póstsins.
Við bjóðum upp á sendingar með Dropp fyrir vefverslun
Verðskrá IKEA fyrir Dropp sendingar
| Dropp staðir | Þyngd | Verð |
| Höfuðborgarsvæðið | 0-10kg | 790,- |
| 10-30kg | 1.590,- | |
| Aðrir afhendingastaðir | 0-10kg 10-30 kg |
990,- 2.190,- |
| Heimsendingar 18-22 | ||
| Höfuðborgarsvæðið og Suðvesturhornið | allt að 150kg | verð frá 1.590,- |
| Heimsendingar 10-16 | ||
| Höfuðborgarsvæðið | allt að 150kg | verð frá 1.590,- |
Verð miðast við þyngd eða rúmmálsþyngd, hvort sem hærra er
Lengsta hlið pakkningar má ekki vera lengri en 180 cm.
Skoðaðu afhendingarstaði Dropp
Samskip
Sendingarkostnaður utan höfuðborgasvæðisins er samkvæmt gjaldskrá á www.samskip.is.
Sendingar eru fluttar í vöruhús flutningsaðila. Athugið að hafa þarf samband við Samskip ef óskað er eftir að fá vörurnar sendar heim að dyrum. Í þeim tilvikum þarf að greiða aukagjald hjá Samskip samkvæmt verðskrá. Við hjá IKEA kappkostum að afgreiða vöruna eins fljótt og hægt er úr húsi.
Upplýsingar um dreifingu sendinga utan höfuðborgasvæðisins
Flestar sendingar út á landsbyggðina eru afhentar í vöruhús flutningsaðila. Vilji viðskiptavinur fá sendinguna heim að dyrum þarf að hafa samband við Samskip og greiða aukagjald samkvæmt verðskrá.
Á þeim svæðum þar sem flutningsaðili býður ekki upp á vöruhús eða afhendingastöð, eru sendingar sendar heim að dyrum. Þetta hefur áhrif á sendingargjaldið sem IKEA innheimtir með pöntun.
Rekja og finna sendingu
Hér getur þú flett upp sendingarnúmeri til að sjá hvar pöntunin þín er stödd
IKEA Höfuðborgarsvæðið
Fast verð fyrir sendingar undir 900 kg er 9500 krónur. Ef sendingin er 900 kg eða þyngri þá er greitt samkvæmt gjaldskrá IKEA.
Heimsendingarþjónustan felur í sér akstur frá IKEA að heimili viðskiptavinar þar sem bílstjóri kemur vörunum út fyrir lyftu á bíl. Til að tryggja hagkvæmni heimsendinga þarf móttakandi að vera heima á þeim tíma sem vörurnar berast. Ef viðkomandi er ekki heima verða vörur sendar aftur til IKEA. Athugið að bílstjóri sér eingöngu um akstur. Hvers konar tjón eða skemmdir sem verða á vörunum eftir að þær eru komnar úr bílnum eru á ábyrgð viðtakanda. Ekki er sendingarþjónusta á samsettum vörum.
Ef þörf er á aðstoð við að bera vörurnar inn á heimilið bendum við á sendibílaþjónustur, þar er greitt eftir gjaldskrá.
Viðskiptavinir geta valið að fá vörurnar sendar heim annað hvort frá 13-16 eða 16-20 virka daga og um helgar frá 10-13 eða 13-17. Ekki er hægt að gefa upp nákvæmari tímasetningu.
Til að tryggja hagkvæmni heimsendinga þarf móttakandi að vera á staðnum á þeim tíma sem vörurnar berast. Sé viðkomandi ekki á staðnum verða vörurnar sendar aftur til IKEA og getur viðskiptavinur nálgast þær þar eða hringt í þjónustuver og greitt aftur fyrir heimsendingu á nýjum tíma.
Smelltu sæktu
Með smelltu og sæktu þjónustunni getur þú verslað á vefnum og sótt pöntunina til okkar. Afgreiðsla pantana er opin alla daga 11-20.
Ástæða tínslugjaldsins er einföld: við viljum halda vöruverðinu lágu. Hjá IKEA fer kostnaðurinn við að tína saman vörur ekki inn í vöruverð. IKEA er fyrst og fremst sjálfsafgreiðsluverslun; viðskiptavinir sækja vörurnar sjálfir og setja þær saman sjálfir. Þannig fá þeir lægsta verðið. Það tekur tíma og mannskap að tína saman vörur fyrir viðskiptavini, og þess vegna kostar sú þjónusta aukalega. IKEA býður alltaf upp á besta mögulega verð á vörum og þjónustu.
Hvernig virkar þetta?
- Þú verslar á vefnum og merkir við í pöntunarferlinu að þú viljir sækja vörurnar til okkar
- Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er, getur tekið allt að 48 klukkustundir.
- Pantanir eru afhendar í vöruafgreiðslu að Kauptúni 4. Vöruafgreiðslan er staðsett á suðurhlið hússins; ekið er áfram meðfram húsinu vinstra megin við inngang.
- Tínslugjald er 1.450,- fyrir pantanir úr verslun.
- Lágmarksupphæð fyrir pöntun í Smelltu og sæktu er 15.000,-