Stórt skref í átt að snjallara heimili
Nýjar snjallvörur IKEA hafa litið dagsins ljós. Snjallvörurnar eru afrakstur margra ára þróunar og prófana og markmiðið með þeim er að gera snjallheimili einfaldari og aðgengilegri fyrir fleiri. Nú er auðveldara að nota mismunandi snjallvörur saman – jafnvel þótt þær séu frá ólíkum framleiðendum og þú getur stjórnað snjallheimilinu þínu á einum stað, í einu appi eða í gegnum eina gátt, á einfaldan og þægilegan hátt.
Matter – sameiginlegt tungumál snjallheimilisins
Nýju snjallvörurnar eru 21 talsins og eiga það sameiginlegt að vera hannaðar til að virka með Matter – alhliða snjallbúnaði fyrir öll heimili.
Matter er ný leið fyrir snjallheimilisvörur að vinna saman. Í einföldu máli er Matter sameiginlegt tungumál sem gerir snjallvörum frá mismunandi vörumerkjum kleift að tengjast og virka saman í sama kerfi. Þannig getur þú til dæmis verið með ljósaperur frá IKEA, skynjara frá Philips og myndavél frá Samsung og stjórnað öllu á sama stað!
Þú velur hvort þú notir IKEA Home smart appið eða app frá öðrum framleiðanda sem styður Matter. Það sama gildir um gáttir – þú getur notað DIRIGERA gáttina frá IKEA eða aðra gátt sem virkar með Matter.
DIRIGERA – hjarta snjallheimilisins
Ef Matter er tungumál mætti líka DIRIGERA við túlk. DIRIGERA gáttin virkar með Matter og tengir saman nýjar og eldri snjallheimilisvörur. Hún virkar eins og brú á milli eldri IKEA Home smart vara sem nota Zigbee og nýrra Matter-vara, bæði frá IKEA og öðrum framleiðendum. Þannig geta gamlar og nýjar vörur unnið saman á sama snjallheimilinu, án þess að bæta þurfi við aukabúnaði.
Hvaða vörur virka með Matter?
Til að vita hvort vara frá öðru fyrirtæki virki með IKEA Home smart appinu og DIRIGERA gáttinni þarf að athuga umbúðir vörunnar. Þar á að vera sérstakt Matter-tákn sem sýnir að varan styður þessa tækni.
Nýjar Matter-vörur er hægt að tengja við eldri TRÅDFRI og Home smart vörur í gegnum DIRIGERA gáttina.
Sumar fjarstýringar, eins og BILRESA, MYGGBETT og MYGGSPRAY, er einnig hægt að para beint við aðrar IKEA snjallvörur með einföldum hætti. Sumar vörur, eins og SOLSKYDD, KULGLASS og NATTBAD, nota Bluetooth og virka því ekki með Matter.