Það getur stundum verið snúið að finna réttu gjöfina fyrir tækniunnendur sem eru gjarnan með puttann á púlsinum hvað varðar nýjustu og flottustu græjurnar. Í IKEA finnur þú ýmsar gjafir sem geta gert heimilið snjallara, loftgæðin betri eða daglegt líf aðeins einfaldara.
Hljómar vel!
Tækniunnandi þarf rétta búnaðinn til að hlusta á uppáhaldslögin sín. WiFi - hátalari kemur til bjargar þegar þarf að skipta úr stuði í slökun.
Sama heimilið, bara aðeins snjallara
Með IKEA Home smart er hægt að tengja snjallvörur saman - sannkallaður draumur tækniunnenda. Með nýju þráðlausu gáttinni er til dæmis hægt að stýra morgunrútínunni; kveikja ljósið, draga frá gluggunum og jafnvel koma kaffinu af stað - allt í einu appi.
Kynntu þér IKEA Home smart