Velkomin til Himalajafjalla
Viltu hitta rauða pöndu? Eða fara í fjallgöngu með snjóhlébarða? ALPTALL vörulínan færir liti, plöntur og dýr Himalajafjallanna inn á heimilið svo þú getir látið ímyndunaraflið ráða för! Þú finnur mjúk leikföng, nytsamlegar hirslur, límmiðar, rúmföt og fleira – allt innblásið af þessum undraverða heimi Himalajafjalla.
Leikur með ALPTALL
Hvert ALPTALL mjúkdýr er innblásið af raunverulegu dýri frá Himalajafjöllunum. Sum þeirra kunna vel við sig í köldum eyðimörkum, önnur kjósa frekar grösugar hásléttur – öll elska þau þó knús!
Úlfaldar, tígrisdýr og birnir... ó, hjálpi mér!
„Ég lærði mikið um gróður og dýralíf Himalajafjallanna á meðan ég vann að þessari línu. Ég vissi ekki hversu fjölbreytt landslagið er!“
Malin Gyllensvaan
hönnuður