Hjá IKEA getur þú hannað draumaeldhúsið frá grunni. Við bjóðum upp á ókeypis teikniforrit þar sem þú getur leikið þér með hugmyndir þínar og séð hvernig eldhúsið kemur til með að líta út. Þú þarft ekki að hlaða niður neinum forritum, teikniforritin eru aðgengileg á vefnum okkar og því getur þú byrjað strax að teikna upp draumaeldhúsið þitt.*

*Teikniforritin henta ekki fyrir snjallsíma enn sem komið er.

Skipuleggðu draumaeldhúsið

Kynntu þér hvernig þú nýtir rýmið til hins ýtrasta og láttu eldhúsdrauminn rætast.
 

1. Færðu málin þín í teikniforritið og byrjaðu að hanna eldhúsið.

2. Mundu að vista teikninguna og setja upp aðgang með notandanafni og
    lykilorði. Þannig verður ferlið enn auðveldara. 

3. Notaðu leiðarvísinn til að fá ýtarlegar leiðbeiningar til að skipuleggja eldhúsið.

Hlaða niður leiðarvísi
Horfðu á myndbandið til að kynna þér hvernig þú nýtir rýmið í eldhúsinu til fulls. Sjáðu kosti og galla við algengt skipulag á eldhúsi og mistök sem ber að forðast.

IKEA METOD eldhús

Teikniforrit fyrir eldhús

Vantar þig eldhús sem passar fyrir þig? Fría teikniforritið okkar ásamt ímyndunaraflinu þínu geta hjálpað þér að raungera draumaeldhúsið. Þú færð raunsæja mynd af því hvernig rýmið kemur til með að virka og getur aðlagað það að þínum smekk allt niður í fínustu smáatriði, eins og til dæmis borðplötu, veggplötur og innvols.

 

Teikniforrit fyrir eldhús

ENHET teikniforrit

Veldu tilbúið ENHET eldhús sem er bæði sveigjanlegt og hagkvæmt og svo það útlit sem höfðar til þín. Skiptu út hurðum, blandaðu saman litum og opnum og lokuðum hirslum eins og þér hentar þar til þú ert komið með eldhús sem er sérsniðið að þér. Fljótlegt og einfalt.

 

ENHET teikniforrit
IKEA ENHET eldhús

Þarftu aðstoð?

Við getum aðstoðað þig eða bent þér á traustan aðila með allt frá mælingum til uppsetningu eldhússins og allt þar á milli. Hjá okkur færð þú þvi ekki einungis breitt úrval af eldhúsum heldur einnig fjölbreytta þjónustu. Hvort sem þú vilt aðeins örlitla aðstoð eða mikla þá getur þú valið úr ýmsum þjónustuleiðum.

 

Skoðaðu þjónustuleiðir fyrir eldhús

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X