Eldhúsheimsókn fyrir opnun

Komdu í heimsókn í IKEA og skoðaðu eldhús og eldhúslausnir í rólegu umhverfi áður en verslunin opnar. Eldhúsheimsókn IKEA gefur þér tækifæri til að skoða þig um í innréttingadeild fyrir opnun og fá innblástur fyrir framtíðareldhúsið.

Teiknari frá IKEA verður á staðnum til að svara spurningum, ræða hugmyndir og leiðbeina um lausnir sem gætu hentað þínum þörfum. Heimsóknin er fyrst og fremst ætluð til að gefa þér innblástur og því eru engar teikningar unnar á meðan heimsókn stendur yfir.

Til að tryggja góða upplifun er fjöldi gesta í hverri heimsókn takmarkaður og því þarf að bóka fyrirfram. Þannig getum við svarað spurningum og veitt persónulegri leiðsögn um eldhúslausnirnar okkar. Athugaðu að verslunin er lokuð meðan á heimsókn stendur og því er ekki hægt að versla á þessum tíma. Ef óskað er eftir teikningu verður hún unnin eftir heimsóknina og send innan fimm virkra daga.

Við hlökkum til að taka á móti þér og hjálpa þér að láta eldhúsdrauminn rætast.

 

Bókaðu heimsókn