Nútímalegt útisvæði fyrir alla fjölskylduna
Þú getur notað útisvæðið fyrir allt frá afslöppuðum morgunverði til notalegra kvöldstunda – og allt þar á milli. Það er auðvelt að raða þessum rúmgóðu útihúsgögnum saman á mismunandi hátt svo þú getir fengið útisvæði sem hentar þér. Grár plastreyr, endingargóður málmur og hlýlegur akasíuviður færa garðinum einstaklega glæsilegt yfirbragð. Drífðu þig út og finndu rétta sumarandann.
Afslappandi síðdegi og mjúkir tónar
Púðar, teppi og einingasófi er allt sem þarf fyrir notalegt síðdegi utandyra! Njóttu einverunnar til að slaka á eða spjallaðu við fjölskyldu og vini í rúmgóðum og þægilegum sófa í síðdegissólinni. Njóttu þagnarinnar, hlustaðu á fuglana eða taktu lampa með hátalara með þér út og fylltu loftið af uppáhaldstónlistinni þinni.
Njóttu útiverunnar í þægilegum stólum
Garðpartí snúast um samveru utandyra og VITTSKÄR borðið og stólarnir standa undir því. Hringlaga borð skapar samræmt og notalegt andrúmsloft við máltíðina og hvetur til samræðna á meðan stólarnir tryggja þægindi. Rúmgott borðið rúmar auðveldlega 8–10 manns og hentar því vel fyrir stærri útisvæði. Dökkgrár plastreyr, mjúkar línur og fallegt mynstrið í borðplötunni gefa því einnig fágað yfirbragð. Það er auðvelt að þurrka af húsgögnunum með mildri sápulausn og því þarfnast þau lítils viðhalds og þú getur áhyggjulaus notið útisvæðisins með VITTSKÄR línunni.
Þín eigin uppskera
Taktu ræktunina upp á næsta stig með ASPAREN gróðurhúsi sem gefur útisvæðinu mjúka ásýnd og hjálpar þér að koma ræktuninni af stað. Það er hálfgegnsætt og rúmar þig, plönturnar og blómapottana – og ver tómataplönturnar þínar fyrir veðri og vindum. Gerðu salötin enn ferskari með ljúffengum kryddjurtum.