Breyttu svölunum í maxímalískan griðastað

Þvottaaðstaða, geymsla og notalegt sæti – allt á einum stað. Léttar hillur og glaðlegir bleikir tónar veita þér dásamlegar og afslappaðar svalir þar sem er pláss fyrir allt nema áhyggjur. Með snyrtilegu TÄRNÖ felliborði og -stólum færðu sveigjanlegt og þægilegt sæti innan um hangandi þvottinn. Rýmið er kannski lítið – en það er stútfullt af sjarma.

A lively balcony with green plants and pink lamps, featuring a black and light brown wooden TÄRNÖ outdoor table and tea mugs.

Ljúfi svalalífsstíllinn

Sólskin, ferskt loft og morgunverður með útsýni. Þó plássið sé takmarkað hjálpa TÄRNÖ útihúsgögnin þér að búa til hlýlegan og líflegan krók. Borðið er traust, tekur lítið pláss og er til þjónustu reiðubúið þegar garnirnar byrja að gaula. Það passar vel í þröng rými og þegar veislunni er lokið er auðvelt að leggja borðið saman og ganga frá því. Þægilegir stólar, mynstraðir púðar og litríkar plöntur gera svalirnar að notalegu kaffihúsi – tilbúnu fyrir tebolla og óvænta gesti hvenær sem er.

Skoðaðu útihúsgögn
A balcony with dark grey JUTHOLMEN easy chair and light grey-beige cushions surrounded by patterned pillows and green plants.
A cosy balcony features a black TÄRNÖ outdoor table, surrounded by plants, cushions, and a glass pot with tea.
A bright enclosed balcony with two grey LÄCKÖ shelving units made for outdoor use, displaying various plants and books.

Minnstu hlutirnir eiga skilið sinn eigin stað

Skipuleggðu litlu hlutina sem þú elskar og nýttu hvern millimetra. Tvær léttar LÄCKÖ hillur halda öllum nauðsynjum snyrtilega til sýnis og innan seilingar. Glerkrukkur og kassar í mismunandi stærðum og úr ólíkum efnum gera hillurnar snyrtilegar en um leið aðlaðandi.

 

Maxímalismi er ekki það sama og óreiða

Breyttu litlum krók í vel skipulagða hirslu með KOLBJÖRN skápnum og svalirnar verða hagnýtar en persónulegar um leið. Þessi trausti og stílhreini útiskápur hefur nóg af hillum til að geyma allt milli himins og jarðar – hreingerningarvörur, rúmföt og jafnvel fataslá fyrir sparikjólana. Hámarkaðu geymsluplássið án þess að fórna gólfplássi með því að nýta vegghæðina. Umkringdu svo skápinn með FEJKA gervipottablómum fyrir dásamlega og afslappaða stemningu!

Skoðaðu hirslur fyrir útisvæði
A balcony with a beige KOLBJÖRN cabinet made for outdoor use, surrounded by hanging plants, clothes and pink lamps.
A balcony with a beige KOLBJÖRN cabinet for storage, featuring baskets and cleaning supplies. Indoor plants are nearby.

Brjóttu saman þvott og slappaðu svo af

Svalirnar verða að hinu fullkomna þurrkherbergi með JÄLL þurrkgrindinni sem opnast með einu handtaki. Það er auðvelt að taka hana fram og alveg jafn auðvelt að leggja hana saman aftur þegar allt er orðið þurrt – og þá eru svalirnar lausar fyrir afslöppun og sólbað.

Skoðaðu þurrkgrindur
A white JÄLL drying rack holding clothes is in a tiled, enclosed balcony with greenery where a person is hanging up a shirt.

Steldu stílnum


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X