Breyttu svölunum í maxímalískan griðastað
Þvottaaðstaða, geymsla og notalegt sæti – allt á einum stað. Léttar hillur og glaðlegir bleikir tónar veita þér dásamlegar og afslappaðar svalir þar sem er pláss fyrir allt nema áhyggjur. Með snyrtilegu TÄRNÖ felliborði og -stólum færðu sveigjanlegt og þægilegt sæti innan um hangandi þvottinn. Rýmið er kannski lítið – en það er stútfullt af sjarma.
Minnstu hlutirnir eiga skilið sinn eigin stað
Skipuleggðu litlu hlutina sem þú elskar og nýttu hvern millimetra. Tvær léttar LÄCKÖ hillur halda öllum nauðsynjum snyrtilega til sýnis og innan seilingar. Glerkrukkur og kassar í mismunandi stærðum og úr ólíkum efnum gera hillurnar snyrtilegar en um leið aðlaðandi.