Taktu því rólega í einföldu, náttúrulegu rými með NÄMMARÖ húsgögnum úr gegnheilum við. Lokaðar hirslur og plöntur auðvelda þér að fegra útisvæðið og gera það að hinum fullkomna stað fyrir afslöppun.
Nokkrir mínimalískir NÄMMARÖ stólar og sófaborð gætu verið allt sem þú þarft fyrir notalega morgna og friðsælar helgar. Til að skapa enn heimilislegri stemningu getur þú bætt við mottu og nokkrum aukapúðum í grænum og gulum litum til að lífga upp á svæðið. Hægt er að snúa HÅKANSSKÄR sófaborðinu við og breyta því í hátt hliðarborð, svo þú getir auðveldlega haft drykki og snarl við höndina.
SOLVINDEN loftljós skapar skemmtilegt andrúmsloft á útisvæðinu. Litablandan færir ljósinu einstakan stíl sem gerir það nánast að listaverki! Það er nefnilega ótrúlegt hvað lýsing getur haft mikil áhrif á útisvæðið.
Stígðu út á svalirnar og finndu fyrir þægindum viðargólfsins. RUNNEN gólfklæðningin er fullkomin fyrir berfættar kvöldstundir, plöntuumhirðu og notalegheit. Hún býður þér að slaka á og njóta hverrar stundar utandyra. Fer aldrei úr tísku og er einfalt að leggja – bara smella saman!
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn